Tótal Tenglar
 
 

FÉLAGSMIÐSTÖÐIN LAUGÓ

 

28.9.2009

Amazing Race keppni Laugó

 
Við óskum Arnari, Jónasi, Heimi og Kobba til hamingju! Þeir voru í fyrsta sæti í Amazing Race keppni Laugó! Í öðru sæti voru Brynjar, Björn, Svava og Birta og í þriðja sæti voru Jóvan, Njörður, Árni og Hörður. Samtals voru sex lið sem kepptu en verðlaun voru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin.
 
Á miðvikudaginn er svo opið hús með family guy - láttu sjá þig :)
 

25.9.2009

Ljósmyndakeppni Laugó

 
Við óskum Gunnari og Tómasi innilega til hamingju með glæsilegan sigur í Ljósmyndakeppni Laugó sem var haldin nú í kvöld! Þrjú lið skráðu sig til leiks og kepptust þau um að taka 16 myndir eftir ákveðnu þema sem Laugó hafði ákveðið. Gunnar og Tómas fengu í verðlaun sundkort og máltíð á American Style - ekki amarlegt það! Gleymum því ekki að þeir fara að sjálfsögðu á Wall of Fame!

[ MEIRA ]

VETRARFRÍ