FÉLAGSMIÐSTÖÐIN BUSKINN

 

Allt að gerast í Buskanum í Vogaskóla

Hér munum við, Buska staffið, auglýsa alla viðburði sem verða í vetur! Þess vegna er mikilvægt fyrir ykkur að kíkja hingað á síðuna og tjékka á hvað við erum að vesenast og hvað við erum að plana fyrir YKKUR!
Þið eruð mest töff! Hlökkum til að sjá ykkur öll veeel fersk á nýju ári!! :)
Sjáumst!

OPIÐ Á DAGINN ÞESSA VIKUNA

Kæru vogaskólaunglingar!
Það er opið í Buskanum á eftirfarandi tímum þessa vikuna (15. des til 19.des) : MÁNUDAG: 14-17, MIÐVIKUDAG: 14-17 OG FÖSTUDAG 14 - 17! 
ooooog svooo förum við öll í jólafrí!  Komið og kíkið við í Buskanum! Pleisið er fyrir ykkur! Sjáumst í meeega jólafíling!

Margt hressandi framundan í Buskanum

Í kvöld, miðvikudagskvöldið 11. febrúar  hefst miðasala Samfés í Buskanum klukkan 19:30. Miðinn kostar 2500 og er takmarkað magn miða í boði. Fyrstir koma fyrstir fá.
 
Einnig ætlum við að stensla á föt, þannig að þið getið  komið með einhver föt sem þið viljið lappa upp á og gera mega töff og við mætum með græjurnar í verkið.
 
Sjáumst mega spræk! :)

föstudagurinn 13!

Í dag er föstudagurinn 13! Það er allt að gerast hjá okkur í Buskanum því það er opið í dag og fjölmiðlaklúbburinn ætlar að taka pleisið undir sig! Þið sem ekki eruð í fjölmiðlaklúbbnum en finnst gaman að skrifa greinar, taka myndir eða taka viðtöl við alls konar fólk þá er fjölmiðlaklúbburinn algjöörlega málið fyrir ykkur! 
 
Einnig ef þið hafið hugmynd af einhverjum öðrum skemmtilegum klúbbum þá er um að gera að láta okkur vita, við skoðum allar hugmyndir! :)

Mánudagur 16. febrúar

Jæja kæru Buska unglingar! Mánudagskvöldið 16. febrúar ætlum við að skella okkur saman í leikjamadness! Ætlum í hressandi og skemmtilega leiki og viljum fá flesta með! Þið viljið ekki missa af þessu! Húsið opnar kl 19:30 og leikjamadnessið hefst klukkan 20:00! Sjáumst!

Spilamadness

ójáá... við ætlum að spila frá okkur allt vit á miðvikudaginn 18. febrúar klukkan 19:30 til 22:00! Allir að mæta því við ætlum að leira eins og enginn sé morgundagurinn og gjörsamlega tapa okkur í skemmtilegasta spili norðan alpafjalla... Já við erum að tala um Rapidough!  Þú mætir, ég mæti og það verður bullandi stemmning í húsinu!

Samfés Samfés

Nú fer senn að líða að Samfés hátíðinni. Nú er sölu miða lokið og allir búnir að skila leyfismiðum! "klapp, klapp"! Allir sem eiga miða VERÐA að mæta TÍMANLEGA klukkan 17:20 Í Buskann næstkomandi föstudag
(20. febrúar) því rútan bíður ekki endalaust!:)
 
Allir þeir sem eru að fara Á Samfés hátíðina næstu helgi fá frítt í allar sundlaugar ÍTR á laugardaginn.   Einnig er Sambíóin með mega tilboð fyrir Samfés unglinga alla næstu helgi (20. -22 febrúar), en hægt verður að skella sér í bíó, fá miðstærð af gosi og miðstærð af poppi fyrir þúsund krónur, en til þess að geta nýtt sér þessi tilboð verðið þið að sýna Samfésmböndin sem allir Samfésmiðahafar fá í rútunni á föstudaginn.
 
Váhh þetta verður hresst!

Næst opið á mánudagskvöld 2. mars!

Nú er vetrarfríið byrjað í Vogaskóla og við vonum innilega að þið hafið það ótrúúlega gott og njótið þess að vera í fríi frá skólanum og gerið eitthvað vel hresst og skemmtilegt. Við ætlum svo bara að minna ykkur á opnunina hjá okkur næsta mánudag, 2 mars og vonum að sjá ykkur sem allra flest! Við erum komin með nýtt poolborð í hús og endilega mætið og takið nokkra leiki. Snorri ætlar svo að vera með stenslaklúbb og ætlar að starta honum um kvöldið, en klúbburinn mun svo vera á dagskránni annan hvorn miðvikudag milli 17 til 19 það sem eftir lifir vetrar. Svo megið þið koma með hugmyndir af fleiri klúbbum! Sjáumst í góóðu stuði á mánudag!! yeahh!!

PÓKÓ Á MIÐVIKUDAGSKVÖLD

Sæl mín kæru!
 
Þá er það bara PÓGÓ og aftur PÓGÓ á miðvikudagskvöldið 4.mars  Klukkan 19:30 til 22:00.
 
Sjáumst í meeeeega hressleika!!
 

Pool mót í kvöld!

Jæja. nú er bara málið að mæta á svæðið í kvöld (mánudagskvöldið 9. mars) og sýna góða takta í poolmóti Buskans! Mótið hefst klukkan átta og stemmningin verður yfirþyrmandi góð.....  
 
Be there or Be Squere!

Stensl oooooog búst bar kreisíness

Milli 5 og 7 í dag eeeeer STENSLA OG LISTAKLÚBBUR SNORRA! Snillingarnir Fannar og Danni ætla að vera honum innan handar í að gera eitthvað mega flott stöff!
 
 
Í kvöld milli 19:30 til 22:00 verðum við svo í hoollustu fíling og þess vegna ætlum við að hafa Búst Bar og bjóða upp á hina ýmsu hollustu sjeika.. t.d að skella saman banana, jarðaber, epli, peru og svooo skyr .. eruði til í þessa snilld eða???  Kostar nánast ekkert en lítið glas kostar 50 kjéll og stórt glas er á 100 kall..
 
Sjáumst í gleðinni....

Brjóstsykursgerð

Í KVÖLD VERÐUR BRJÓSTSYKURSGERÐ Í BUSKANUM KLUKKAN HÁLF ÁTTA TIL TÍU! ! ÞIÐ MÆTIÐ Á SVÆÐIÐ OG GERIÐ MEEEGA GÓÐA BRJÓSTSYKUR MEÐ SÆDÍSI OG ÖLDU!! ALLIR AÐ TJÉKKA Á ÞESSU!

ÍÞRÓTTAVIKA

Keppnis kepps!! Nú ætlum við Buskafólk að massa þær keppnir sem framundan eru! Hér er svo dagskrá vikunnar:
 
MÁNUDAGUR 23.MARS
KEPPNISTAÐUR: tónabær
kl 17-19 -
Boccia
Ullarsokkabandý
Pílukast

kl 19:30
Human fussball
Street ball

MIÐVIKUDAGUR 25.MARS
KEPPNISTAÐUR: BÚSTAÐIR
kl 17-19 -
BRENNÓ
BLINDRARBOLTI
9BALL

19:30
KRAFTAKEPPNI


FÖSTUDAGUR 27.MARS
KEPPNISTAÐUR: TBR
KL16:50-19:00
BADMINTON
BORÐTENNIS

KEPPNISTAÐUR: VÖLLUR HJÁ LAUGARNESSKÓLA
KL18-20:30
FÓTBOLTI

FÖSTUDAGSKVÖLD:
SUNDLAUGAPARTÝ Í LAUGARDALSLAUG - KOSTAR 110 KALL - ¨
FYRIR ALLA SEM ERU Í SKÓLUNUM SEX.

SKRÁNING í SUNDLAUGARPARTÝIÐ HJÁ BUSKASTAFFI Í VIKUNNI.

Borðtennismót

Í kvöld, mánudagskvöldið 30 mars, ætlum við að halda borðtennismót og viljum fá ykkur til að mæta og vera með! :) Húsið opnar klukkan hálf átta. Sjáumst í eeendalaust miklum hressleika!

Stensl í kvöld

Stensl í kvöld. Ætlum að stensla t.d. á boli og peysur... Mætið og gerið eitthvað töff stöff! Snorri mun vera á svæðinu og sýna meistaratakta í stensli... Sjáumst í góðu geimi..  Húsið opnar klukkan 19:30..  :)

OPIÐ Í KVÖLD - JEYJJ

Kæru Vogskjælingar... Vonandi hafið þið haft það súper gott um páskana og notið þess að vera í fríi! :) Nú erum við í Buskanum mætt til starfa ferskari en sólin... Það er opið hús í kvöld hjá okkur (miðvikudaginn 15. apríl) frá 19:30 -22:00 og við hlökkum til þess að sjá ykkar fallegu andlit!
 

leikjamadness

Enn og aftur sívinsæla LEIKJAMADNESS! ÞIÐ bara VERÐIÐ að TJÉKKA á ÞESSU!!!
 
Húsið opnar í kvöld (mánudaginn 20. apríl) klukkan 19:30 og lokar 22:00!
 
ÆTLUM AÐ HALDA OKKUR ÚTI OG FARA Í VINSÆLA ÚTILEIKI!
 
EN EEEEF VEÐRIÐ VERÐUR ALVEG Í RÖGLINU ÞÁ HÖLDUM VIÐ OKKUR INNI VIÐ OG MUNUM MISSA OKKUR ALVEG Í MEEEGA HRESSLEIKA!
 
SJÁUMST !!! :)
 

Street ball keppni í kvöld í þróttheimum - Buskinn VS Þróttheimum

Street ball keppnis kepps fyrir utan Þróttheima í kvöld klukkan 19:30! Buskinn vs Þróttheimar! Verðum þar í meeeega hressleika! Einnig verður kósí inni stemmari í Þróttheimum þar sem boðið verður upp á heitt kakó og allir innipúkarnir geta misst sig í spilamennsku og almennri gleði;)

kökur og tyggjó

hey þið, Buska drengir og stúlkur! Það er opið hjá okkur í dag, 6. maí, klukkan 5 til 7 í stensl! Við erum með græjurnar en þið mætið með eitthvað stöff til að stensla á.. ooooog svo í kvöld (19:30 -22) verður boðið upp á kökusmakk og tyggjó (en tyggjóið er fyrir þá sem ætla að vera með í tyggjókúlukeppninni sem verður líka í kvöld!)... Sjáumst í góðu geimi..

lokakvöld Buskans

Jæja okkar kæru uppáhalds vogaskóla unglingar!
 
Nú er komið að síðustu kvöldopnuninni þennan veturinn!  Ætlunin er að skella okkur út í góða veðrið og fara í skotbolta, körfu og einhverja vel hressa útileiki! Við viljum endilega sjá ykkur sem allra allra allra flest! Mætið og verið með!

Buskinn hefur opnað aftur!



Já það var svo sannarlega mikið fjör á fyrstu opnun Buskans síðastliðinn föstudag. Fyrst var opið mili kl 17 & 19 og þá mættu galvaskir krakkar og kíktu á nýja staffið, dótið og voru almennt að spekka hressleikann. Um kvöldið var Snorri svo í því að dæla pylsum í mannskapinn ásamt því sem Inga stóð fyrir dansmaraþoni inni í Buskanum. Í salnum voru svo Jóna og Töddi með tryllt karaoke og fóru margir á kostum þar og er óumdeilt að Óðinn hafi komið hvað mest á óvart með túlkun sinni á Oh, So Quiet með Björk. Hlökkum til að sjá ykkur næst.
[ MEIRA ]

Arnar borðtennischamp!



Það var hann Arnar semtryggði sér sigurinn í bráðabana á móti Loga í úrslitum borðtennismóts Buskans.18 þátttakendur voru skráðir til leiks og þar af 3 stúlkur sem stóðu sig með prýði. Sunna Rut fór í undanúrslit en tapaði fyrir Arnari. Einnig var Eyrún gríðarlega sterk í 8 liða úrslitum. En að lokum var það Arnar í 9. bekk sem fór með sigur úr býtum og fékk að launum að spila við Tödda í verðlaun. Ekki gekk eins vel hjá honum þar en æfingin skapar víst meistarann og ljóst er að Töddi mun eignast verðuga andstæðinga á næstunni ef þróunin heldur svona áfram.

Keppniskvöld




Jæja Busklingar góðir. Keppniskvöld fór fram á mánudagskvöldið og var það sérlega skemmtilegt og var keppt í ótrúlegustu greinum meðal annars að sitja í 90 gráður upp við vegg og það sigruðu Páll og Logi  eftir að hafa setið í heilar 20 mínútur, ótrúlegir drengir! Einnig var keppt í snúningshlaupi, handstöðu, Twister og fleiru. Við minnum á að lokað er í Buskanum í dag miðvikudag vegna Haustballsins sem er á morgun. Hlökkum til að sjá ykkur þar!

Mission Impossible



Föstudaginn 25. september fer fram Mission Impossible keppni í Buskanum. Keppnin er nokkurs konar ratleikur sem fer fram í Laugardalnum og nágrenni. Skráning fer fram í Buskanum á opnunartíma en lýkur á föstudag kl 19. Keppnin er eingöngu fyrir krakka í Vogaskóla í 8.-10. bekk.

Keppnin hefst kl 19:30 og stendur til ca kl 22. 3-6 mega vera í hverju liði og ein stafræn myndavél þarf að vera til staðar í hverju liði. Af gefnu tilefni skal það tekið fram að stranglega bannað er að "húkka" sér far eða fá einhvern til að keyra sig á áfangastaði.


Sjáumst hress
Kveðja Staffið

Stelpukvöld

Í kvöld verður stelpukvöld í Buskanum. Allar stelpur í 8.-10. bekk geta þá mætt og gert allt sem í boði er í Buskanum ásamt mörgu fleiru. Strákar fá ekki aðgang :O) Kvöldið byrjar kl 19 og stendur til kl 22 og er planið að panta pizzu og margt fleira. Það kostar bara 500 kr og við hlökkum til að sjá sem flestar stelpur.

5. bekkjaropnun


Á fimmtudag verður opið bara fyrir 5. bekk á milli kl 14:30-16:30. Við hlökkum til að sjá hressa gorma og ætlum í leiki og fleira skemmtilegt!

Landsmót Samfés

Landsmót Samfés fer fram um helgina á Sauðárkróki. Fulltrúar Buskans að þessu sinni eru þeir Hafþór Gunnarsson og Arnar Jóhannsson úr 9. bekk. Þeir verða þar í skemmtilegum smiðjum og koma heim á sunnudag uppfullir af vizku og gleði. Starfsfólk Buskans sendir þeim baráttukveðjur á Krókinn! Nánari upplýsingar um Samfés eru hér: http://www.samfes.is

VETRARFRÍ