5.-7. bekkjarstarf

Í Þróttheimum fer starf fyrir 5.-7. bekk fram á þriðjudögum.
 
Annan hvern þriðjudag eru almennar opnanir fyrir krakka í 6.-7.bekk, kl. 14-16:30. Þá geta þau komið og sótt opið starf en lítils háttar dagskrá er einnig á þessum dögum.
 
Hinn þriðjudaginn á móti er boðið upp á örnámskeið fyrir 6.-7.bekk ( kl.14-16:30) og klúbbastarf fyrir 5.bekk (kl. 15-17).
Eldri hópurinn skráir sig á sérstök námskeið í löngufrímínútunum sama dag. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem hugmyndir krakkanna sjálfa fá að njóta sín. Mun sérstakt miðstigsráð sjá um dagsrkágerð ásamt starfsfólki. 
Klúbbastarf fyrir 5.bekk er lokað starf sem miðar að því að kynna starfsemi Þróttheima fyrir yngstu kynslóðinni. Þar verður kynning á fjölbreyttu starfi Þróttheima í gegnum leik og fjör.
 
Fjórir starfsmenn sjá um 5.-7.bekkjarstarfið á vorönn 2010. Það eru þau:
 
Hera Sigurðardóttir, verkefnastjóri Þróttheima
Unnur Gísladóttir, frístundarágjafi Þróttheima
Daníel Einarsson, frístundaleiðbeinandi í Þróttheimum
Inga Lára Björnsdóttir, kennaranemi og frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðinni Buskanum í Vogaskóla