Arnar borðtennischamp!



Það var hann Arnar semtryggði sér sigurinn í bráðabana á móti Loga í úrslitum borðtennismóts Buskans.18 þátttakendur voru skráðir til leiks og þar af 3 stúlkur sem stóðu sig með prýði. Sunna Rut fór í undanúrslit en tapaði fyrir Arnari. Einnig var Eyrún gríðarlega sterk í 8 liða úrslitum. En að lokum var það Arnar í 9. bekk sem fór með sigur úr býtum og fékk að launum að spila við Tödda í verðlaun. Ekki gekk eins vel hjá honum þar en æfingin skapar víst meistarann og ljóst er að Töddi mun eignast verðuga andstæðinga á næstunni ef þróunin heldur svona áfram.

VETRARFRÍ