Buskinn hefur opnað aftur!



Já það var svo sannarlega mikið fjör á fyrstu opnun Buskans síðastliðinn föstudag. Fyrst var opið mili kl 17 & 19 og þá mættu galvaskir krakkar og kíktu á nýja staffið, dótið og voru almennt að spekka hressleikann. Um kvöldið var Snorri svo í því að dæla pylsum í mannskapinn ásamt því sem Inga stóð fyrir dansmaraþoni inni í Buskanum. Í salnum voru svo Jóna og Töddi með tryllt karaoke og fóru margir á kostum þar og er óumdeilt að Óðinn hafi komið hvað mest á óvart með túlkun sinni á Oh, So Quiet með Björk. Hlökkum til að sjá ykkur næst.

VETRARFRÍ