Næst opið á mánudagskvöld 2. mars!
Nú er vetrarfríið byrjað í Vogaskóla og við vonum innilega að þið hafið það ótrúúlega gott og njótið þess að vera í fríi frá skólanum og gerið eitthvað vel hresst og skemmtilegt. Við ætlum svo bara að minna ykkur á opnunina hjá okkur næsta mánudag, 2 mars og vonum að sjá ykkur sem allra flest! Við erum komin með nýtt poolborð í hús og endilega mætið og takið nokkra leiki. Snorri ætlar svo að vera með stenslaklúbb og ætlar að starta honum um kvöldið, en klúbburinn mun svo vera á dagskránni annan hvorn miðvikudag milli 17 til 19 það sem eftir lifir vetrar. Svo megið þið koma með hugmyndir af fleiri klúbbum! Sjáumst í góóðu stuði á mánudag!! yeahh!!