Margt hressandi framundan í Buskanum
Í kvöld, miðvikudagskvöldið 11. febrúar hefst miðasala Samfés í Buskanum klukkan 19:30. Miðinn kostar 2500 og er takmarkað magn miða í boði. Fyrstir koma fyrstir fá.
Einnig ætlum við að stensla á föt, þannig að þið getið komið með einhver föt sem þið viljið lappa upp á og gera mega töff og við mætum með græjurnar í verkið.
Sjáumst mega spræk! :)