Þvílik vika!
Í gær bauð Laugó uppá pizzagerð og bíó sem sló svona rækilega í gegn! Um það bil 90 Laugskælingar létu sjá sig, gerðu sér pizzu og horfðu á eitt stykki kvikmynd. Svona viljum við í Laugó hafa kvöldin, stútfull af gleði og hlátri :)
Á morgun er svo black&white ball í minningu Michael Jackson. Stuðið hefst klukkan hálf átta og er til tíu. Það kostar 200 krónur inn og við hvetjum alla til að mæta í svörtu eða hvítu, nú eða bæði!
Á föstudag er svo námskeið í hárspangargerð og svo ljósmyndakeppni um kvöldið. Þeir sem hafa áhuga á þessu geta komið á morgun í Laugó og skráð sig :)
Þvílík gleði - þvílik vika!