Tenglar Tótal
 
 

Perlusumarið Mikla!

Í sumar hefur í félagsmiðstöðinni Þróttheimum skapast gríðarlega mikil perlmenning. Í opna starfinu sem er fyrir unglinga í 8. 9. og 10. bekk í Langholtsskóla, Laugarlækjarskóla og Vogaskóla hafa metnaðarfull perluverkefni orðið að veruleika :)
 
Megin verkefni unglingana hefur verið að skapa perluheim Mario Bros en einnig eru þau að vinna að stærri verkefnum eins og að perla Michael Jackson og Jokerinn úr Batman. Hópurinn sem hefur tekið þetta verkefni að sér eru á öllum aldri úr öllum skólunum og eru þau um 4-8 í þessu skemmtilega verkefni og mæta daglega til þess að klára bæta og breyta.
 
Mikil litagleði, föndurfíl og metnaður hefur verið í sumar og stefnum við á að koma þessu öllu fyrir í fína húsnæðinu okkar í vetur.
 
Sumarkveðjur úr opna starfinu í Þróttheimum :)