Tótal Tenglar
 
 

Starfsfólk

 
 
Unnur Gísladóttir, Verkefnastjóri / frístundaráðgjafi
Aldur: 26 ára
 
Fyrri störf: Unnur hefur unnið með unglingum frá því hún var sjálf 16 ára. Hún hóf störf hjá ÍTR í gegnum Hitt Húsið og starfaði með Jafningjafræðslunni í 5 ár. Hún hefur unnið sem hlutarstarfsmaður með námi í Þróttheimum frá árinu 2004. Haustið 2009 hóf hún störf í 100% hlutfalli og tók við sem verkefnastjóri vorið 2010.
 
Menntun: Unnur er stúdent frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti og hefur stundað nám í dansi í Svíþjóð. Hún er með BA-gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands.
 
Áhugamál: Unnur hefur mikinn áhuga á dansi og öllu sem viðkemur líkamstjáningu. Hún hefur eitthvað verið að prjóna og sauma föt auk þess sem hún er mikill lestrarhestur. Á kvöldin horfir hún á bandarískar sjónvarpsseríur og hlustar á Prince.
 
Inga Lára Björnsdóttir, Frístundaleiðbeinandi
Aldur: 25 ára
 
Fyrri störf: Inga Lára hefur unnið með börnum og unglingum frá því hún var 16 ára, bæði í Sumarbúðunum Ævintýralandi og hjá ÍTR. Hún hóf störf hjá ÍTR sumarið 2005 og hefur síðan unnið í sundlaug Grafarvogs og sem hlutastarfsmaður með námi í félagsmiðstöðinni Nagyn í Húsaskóla og félagsmiðstöðinni Buskanum, Vogaskóla. Önnur hlutastörf eru á bókasafni Verzlunarskóla Íslands, tilsjónarmaður, stuðningsforeldri og margt, margt fleira. Í maí 2010 hóf Inga Lára 100% starf sem frístundaleiðbeinandi í Þróttheimum.
 
Menntun: Inga Lára er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og stundar nú nám í Háskóla Íslands. Hún stefnir að því að útskrifast sem stærðfræðikennari.
 
Áhugamál: Inga Lára hefur mikinn áhuga á skókasti, ferðalögum, fólki, snjókasti, félagsmálum og svo mörgu öðru.
 
 
Viktor Birgisson, hlutastarfsmaður
Aldur: 21 ára
 
Fyrri störf: Viktor hefur unnið hjá ÍTR síðan 2008. Hann starfar á daginn í Frístundaheimilinu Laugaseli.
 
Menntun: Viktor er með stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sund.
 
Áhugamál: Viktor er mikill áhugamaður um tónlist. Hann semur sína eigin raftónlist og þegar hann bjó í Svíþjóð sem krakki æfði hann bandý. Hann hefur einnig áhuga á fótbolta og fólki.
 
 
Daníel Einarsson, hlutastarfsmaður
Aldur: 22 ára
 
Fyrri störf: Danni hefur reynslu af því að vinna með börnum og unglingum. Sumarið 2009 vann hann í félagsmiðstöðvahóp í Laugó með unglingahóp. Hann hefur einnig unnið með börnum og meðal annars unnið á frístundaheimilinu Glaðheimum.
 
Menntun: Danni er með stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sund en þessa dagana er hann í Háskóla Íslands þar sem hann lærir jarðfræði.
 
Áhugamál: Danni hefur mikinn áhuga á útivist, jaðaríþróttum og almennt öllum leik. Hann hefur einnig gott lag á ljósmyndun og er listrænt þenkjandi. Mætti segja hann gourmet mann því matargerð er honum hugleikin.